Jæja, hæ hæ
[ATHUGIÐ MEÐAN ÉG MAN] -> Það er eitthvað í rugli með comment formin og commentin sem allir eru buin að skrifa. Það virðist vera að ég sjái þau bara en ekki utanaðkomandi. Ég fer í að laga þetta sem fyrst. En ef þið getið commentað due to this fix, endilega commentið og ég publisha þetta svo þegar ég laga þetta !!
Nú er Egill Örn loksins orðinn 16 ára. Sem þíðir margt og þó einna helst bílpróf eftir 365 daga =) Svo passið ykkur eftir ár, þá verð ég að venjast því að keyra bíl í hálku þar sem ég fæ bílpróf 25 nóvember mánaðar.
Jæja þá, 16 ára er að vissu leyti stórafmæli. En já, nú er 1 klukkutími liðinn af afmælisdeginum mínum og mér blöskrar það að þurfa sofa núna til 7 og vera í skóla til 1 og vera búinn að eyða þá 13 klukkustundum af afmælisdeginum. Næst mun ég bara kaupa mér kassa af magic og vera hress allann tíman.
En já, ég hef hugsað margt að undanförnu. Hvort sem það er hvað ég eigi að fá mér í morgunmat, stelpur, hljómsveitarmál, próf í skólamál, tónlistartengt mál og annað víðara tengt lífinu.
Ég mun kannski deila einhverjum sérstökum hugsunum næstu daga, en þó ekki núna.
Viljiði vita hvað fær mig til þess að fá hroll af fyrirlitningu. … Þegar fólk leggur í stæði fatlaðra þegar það er ekkert að þeim!!. Stíga út úr farartækjunum þrælfrísk hvortsem það er 24 ára hnakki að deyja úr monti yfir gulu hondu civikkuni eða 24 ára kona að hugsa um nýjasta maskarann shocking sem hún ætlar að kaupa sér í hagkaup.
Þetta fer svo í taugarnar á mér að ég labba rakleiðis að þessu fólki stundum og segi þeim að hypja sig.
Bara svona til þess að ýta líka undir mína skoðun þá var ég sjálfur í hjólastól í einhvern 1 mánuð og vá, þegar ég sá fífl sem lögðu og ekkert var að.. Missti ég mig af reiði. Nú veit ég hvernig fötluðum, hreyfilömuðum, bækluðum og annars vegar líkamlega og eða andlega veika fólki líður þegar einhver leggur í stæði sem það á ekki að koma nálægt einu sinni
Magnús vinur minn liggur enþá á spítala, og ekki er búið að vekja hann en líðan hans er stöðug og læknarnir eru að spá í því að vekja hann næstu daga.
Magnús, ég segi það alltaf og segi það nú. Þú ert sterkur, þú berst eins og víkingur .. Bægðu þessi veikindi niður í gólfið 
þinn vinur, Egill Örn
__
Jæja, ég ætla sofa til þess að geta nýtt daginn vel. Afmælisbarnið biður góða nótt. ;*
-Munið, lífið er stutt svo njótið þess-